Ég er að bræða með mér þá hugmynd að byrja að blogga aftur. Það eru allir hættir að lesa þetta blogg, allir tenglar á þetta blogg eru sjálfsagt óvirkir og það hentar feimnum bloggara mjög vel. Hugsa að ég fari að læða hingað inn færslum.
08 september, 2009
06 júlí, 2009
|17 maí, 2009
| |14 maí, 2009
| | |11 febrúar, 2009
Með vísan til 2.mgr. 4. gr. laga nr. 21/1992, um Lánasjóð íslenskra námsmanna, er skipunartími yðar í stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna til tveggja ára. Skipunartíminn er þó takmarkaður við embættistíma þess menntamálaráðherra er skipaði yður í stjórn sjóðsins. Í ljósi nýlegra ráðherraskipta er lokið setu yðar í stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna.
Thank you very nice!
07 febrúar, 2009
Það er fallegur laugardagur. Fyrsti kaffibollinn situr á borðinu hjá mér sem ég dýfi í biscotti af miklum móð meðan frekari óhollusta er plönuð. Enda er nammidagur í dag. Ég á hann reyndar ekki skilið þar sem að það fór ekki mikil fyrir leikfiminni í vikunni. En samt. Dóra könnuður er á mute í sjónvarpinu og Andrew Bird á iPodnum. Ég er á náttfötunum og vildi helst vera í þeim í allan dag. Vaka vann kosningar og ef ég þekki mitt fólk rétt, er þriðji í sigri í kvöld. Plön dagsins eru að skreppa í hádegiskaffi til langa og löngu, og gera vikuinnkaupin. Dýrðardagur. Gott blogg.
03 febrúar, 2009
Ég fór í lítið viðtal í dag um tímann í stúdentapólítíkinni. Vegna þessa hef ég undanfarna daga verið að láta hugann reika til þessara ára sem maður gerði lítið annað en að sofa, borða og að vera í Vöku. Þvílíkir tímar! Ógleymanleg reynsla, ógleymanlegt fólk - ógleymanlegur tími. Þáþrá og þó.
15 október, 2008
30 ára í dag!! Út í hött og eðlilegt í senn! Fínt mál, en mér finnst samt ennþá pínu skrítið þegar ég er kölluð kona! En kona er ég nú samt og stelpa - í senn. Og mamma. Sonur minn sagði 'mama' í fyrsta sinn í nótt og gaf mömmu sinni bestu afmælisgjöfina um leið. Góður dagur.
12 október, 2008
Þetta eru skrítnir tímar. Skrýtnir.
Það er ekkert annað að gera en að setja undir sig hausinn. 1985 var víst ekki svo slæmt! Sodastream og næs.
Engin kreppa fær frá manni tekið það sem öllu skiptir, fjölskyldu og vini - og húmor. Með þessu má land byggja! Sannarlega.
24 september, 2008
Ég var með lag eftir Ingó og veðurguðina á heilanum í alla nótt. Ég virðist m.a.s kunna meilmikið í texta lagsins! Þvílík örlög.
Af familíunni er það að frétta að þessa dagana erum við Jón Steinar að reyna að drífa okkur í World Class á morgnana. Hann að æfa sig að vera í pössun og ég að æfa kroppinn. Þetta gengur ágætlega, en virðist þess heldur erfiðara fyrir mömmuna en soninn. Það er erfitt að bægja þessum dreng úr huga sér jafnvel þó að púlsinn sé í 180 og CSI á skjánum fyrir framan mann. Svo held ég auðvitað sem endranær að veröldin snúist ekki án mín, þ.a.l. að sonur minn hljóti að vera afar vansæll fjarri mér. Sem er rangt auðvitað. En hann er samt alltaf mjög glaður að sjá mig :)
Svo læðist þrítugsafmælið hljóðlega að mér.......spurning hvort skuli gleðjast á einhvern hátt yfir því?
25 ágúst, 2008
Sonur minn er sex mánaða í dag! Ótrúlegt. Óendanlega langt og stutt í senn. Við héldum upp á daginn með því að reyna að laga aðeins til á heimilinu. Að laga til er ekki lengur tveggja klst fasi, heldur er þetta svona korter hér og korter þar, allt eftir duttlungum drengsins litla - sem eðlilegt er. Sem verður þess hins vegar valdandi að foreldrarnir eru ennþá latari við þessi verk en áður. Hnuuussss.
Litla familían fór á ættarmót að Urðum um helgina, en þar komu niðjar Páls Bergþórssonar og Huldu Baldursdóttur saman og átu, tóku í spil og sungu. Það var gaman. Í seli hæða vöknuðum við síðan á sunnudegi til að fylgjast með strákunum okkar taka gullið. Einmitt.
Annars er ég að reyna að finna blogg mojo-ið mitt aftur, en það er týnt. Jú sjáið þið, svo margir hafa komið að máli við mig og beðið mig um að taka upp þráðinn að nýju :)
07 ágúst, 2008
09 apríl, 2008
Ásdís í orlofi. Þetta eru skrítnir tímar. Hlutverkið fer mér þó ágætlega að ég tel. Hver dagur ber eitthvað nýtt í skauti sér, daglegar framfarir litla mannsins eru ótrúlegar, og það eru algjör forréttindi að fá að vakna til þessa drengs og vera með honum alla daga þessa fyrstu mánuði (þó að auðvitað sé ég alltaf jafn úldin og orðið 'forréttindi' mjög fjarri mér þegar mjólkurkallið kemur um miðja nótt :) )
En þetta er líka skrítið. Ekki nóg með að hann eigi hug manns allan, heldur á hann mann sannarlega með húð og hári!
Í Seli hæða er því mikið gaman að vera til, en það fer reyndar eftir vindum (og þá meina ég vindgangi sumra) hversu gaman :)
17 mars, 2008
Þann 25.febrúar síðastliðinn fæddist okkur Ívari Páli þessi undursamlegi drengur. Þetta 3320 gramma (13.5 merkur) og 52 centimetra kríli skaust í heiminn með talsverðum látum, en hefur verið til stakrar prýði síðan. Tilveran síðustu 3 vikur hefur því snúist einvörðungu um þennan litla mann, að seðja hann og gleðja - og eru foreldrarnir orðnir sérlegir áhugamenn um vindgang hans og fagna í einlægni öllum afrekum á því sviðinu. Lífið hefur alltaf verið gott, en lengi getur gott 'bessnað' greinilega :)
25 janúar, 2008
Ég er veðurteppt heima hjá mér. Í Reykjavík! Þetta er nýtt. Útsýnið héðan úr kjallaraholunni í Hæðarseli minnir mig óneitanlega á veðurtryllta daga á Seyðisfirði - þar sem veðráttan er (eða var a.m.k.) af einhverjum allt öðrum meiði en sú sunnlenska.
Annars hafa liðið hér á blogginu mínu dagar, vikur, jól og áramót án tíðinda - en þó ekki vegna þess að það sé tíðindalaust. Höfuðið er bara einhvers staðar annars staðar, með allan sinn fókus á vaxandi kvið og gulan lazy-boy stól. Pjakkurinn innra dafnar og er orðinn það styrkur í spörkum og rassaköstum að nóg finnst mér um - og þó eru 6 vikur í áætlaðan komudag. Í engu er hægt að lýsa þessari upplifun og enn upplifir maður hálfgerða vantrú á því að þarna leynist heil ný lífvera, sem komi svo fullsköpuð í mannsmynd einn daginn útúr belgnum, og breyti öllum innviðum manns og umhverfi í einni svipan.
Jamm, það eru alls kyns naflaskoðanir í gangi í Hæðarselinu. Yfir og inn.
30 nóvember, 2007
Eðalfólkinu Hörpu og Guðjóni fæddist lítill drengur í fyrrakvöld í Kaupmannahöfn, 13 merkur og 51 cm. Öðru klassapari, Sunnu og Óla, fæddist lítill snáði þann 6.nóv s.l., einnig í Kaupmannahöfn. Þessir prinsar og foreldrar þeirra fá hér með hressilegar bloggkveðjur. All is full of babies.
29 nóvember, 2007
Á rás 2 hljómar lagið Sympathy for the devil..og það er sem við manninn mælt - eins og alltaf þegar ég heyri þetta lag, að ég slengist í huganum í sumarið 1994 á Seyðisfjörð. Þegar ég var í hljómsveit með hverjum einasta tónfæra einstaklingi á mínum aldri í bænum, þegar mér fannst lífið vera að byrja, þegar ég byrjaði að drekka bjór og kaffi, þegar ég var svo ástfangin af strák að mér leið líkamlega illa í návist hans, þegar sumarið var ein samfelld sæla með söng og gítar um allan fjörð og það var svo spennandi að vera til að ég gat ekki sofið. Ég veit að við erum fleiri sem fáum örari hjartslátt og ljúft bros á andlitið þegar þetta lag hljómar. Gooooood times.






